Norðausturkjördæmi hefur 10 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Núverandi kjördæmaskipan var samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, en áður voru kjördæmin átta talsins. Breytingin miðaði að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu.
Til kjördæmisins teljast sveitarfélögin: Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Múlaþing, Fljótsdalshreppur og Fjarðabyggð.
Heimild: Hagstofa Íslands
Þingmenn:
Ingibjörg Isaksen
Líneik Anna Sævarsdóttir
Þórarinn Ingi Pétursson
Varaþingmenn:
Helgi Héðinsson
Halldóra Hauksdóttir
Kristinn Rúnar Tryggvason